English version

Dýrfinna í Japan
(31/5 ´07)

Dýrfinna Torfadóttir fer í hópi sjö Íslendinga á hönnunarsýninguna Design Zakka Tokyo 2007 sem haldin verður 4. – 6. júlí n.k. í Tokyo í Japan. Um er að ræða alþjóðlega sýningu sem einkum er þekkt fyrir að koma á framfæri framsæknum, áhugaverðum og frumlegum hönnuðum á ýmsum sviðum handverks.

Í íslenska hópnum er Dýrfinna sá eini sem fæst við hönnun og gerð skartgripa en það er Útflutningsráð Íslands sem skipuleggur og stendur að baki þátttöku íslensku gestanna.

Aðrir í hópnum eru þau Thelma Björk sem sýnir hárskraut, Sigríður Heimisdóttir og Herdís Kjartansdóttir, húsgagnahönnuðir, Kolbrún Björgúlfsdóttir(Kogga), leirlistakona, Þorbjörg Valdimarsdóttir og Rósa Helgadóttir, fata- og textílhönnuðir, Hildur Inga Björnsdóttir, fatahönnuður og Edda Hrönn Atladóttir frá Atson Leðuriðju.

Nánar má fræðast um sýninguna á www.designzakkatokyo.jp