English version

Smellið til að sjá myndina stærri

Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur
(21/11 ´07)

Dýrfinna tók þátt í sýningu sem HANDVERK OG HÖNNUN stóð fyrir í Ráðhúsi Reykjavíkur helgina 12. – 14. október s.l. Mikill fjöldi fólks heimsótti Ráðhúsið í Reykjavík sýningarhelgina en þar mátti líta kynningu á handverki, listiðnaði og hönnun. Áætlað er að milli 10 og 15 þúsund manns hafi komið og skoðað það sem þar var til sýnis en sýningaraðilar voru samtals 57 talsins. Dýrfinna sjálf var ekki viðlátin þessa helgi en Sigrún Sigurjónsdóttir, nemi hennar stóð vaktina með kurt og pí. Sigrún er jafnframt fullnuma sem skartgripahönnuður frá Ítalíu. Meðfylgjandi er slóð á vef HANDVERKS OG HÖNNUÐAR þar sem sjá má myndasafn frá sýningunni.
http://www.handverkoghonnun.is/default.asp?sid_id=34112&tId=6&Tre_Rod=001|016|001|&qsr


Smellið til að sjá myndina stærri

Þýskur gullsmíðanemi í heimsókn
(21/11 ´07)

Í október síðastliðnum var þýskur gullsmíðanemi á 2. ári í Gullsmíðaskólanum í Arnstadt í námsdvöl hjá Dýrfinnu og Finni á Akranesi. Stúlkan heitir Kati Mnich, á ættir að rekja til Rostock og hélt einmitt upp á tvítugsafmælið á Skaganum laugardaginn 5. október. Hluti námsins er þriggja vikna námsdvöl hjá meistara og valdi hún Ísland af einskærri forvitni en hún rakst á Dýrfinnu á vafri sínu
um netið. Kati hefur nú haldið til síns heima
á ný og sest reynslunni ríkari aftur á skólabekk.

Smellið til að sjá myndina stærri