English version

Dýrfinna í Berlín
(15/11 ´06)

Dýrfinna tók þátt í sýningunni Gold 2006 sem er árleg sýning um 50 þýskra skartgripahönnuða sem haldin var í salarkynnum Internationales Handelszentrum IHZ í Berlín dagana 27. – 29. október s.l. Þetta var í fyrsta sinn sem útlendingum er boðin þátttaka í þessari sýningu. Auk Dýrfinnu tóku 3 gullsmiðir frá Íslandi þátt, þau Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir, Helga Ósk Einarsdóttir og Inga Rúnarsdóttir Bachmann, allar frá Reykjavík. Þátttakendur voru tilnefndir fyrir atbeina íslenska sendiráðsins í Berlín en þar starfar viðskiptafulltrúi sem skipulagði heimsókn gestanna. Sendiherra Íslands, Ólafur Davíðsson hélt gestunum boð í glæsilegum móttökusal í bústað sendiherrahjónanna þar sem þýskum gestum var jafnframt boðið að skoða nokkra muni gullsmiðanna, njóta veitinga og tónlistar en Hanna Dóra Sturludóttir, sópran söng fyrir gesti íslensk og þýsk lög.. Auk þess voru sameiginleg sendiráð Norðurlandanna skoðuð á meðan á dvölinni stóð.
Sjá nánar hér:www.gold2006.de




Nokkrar myndir frá Gold 2006 í Berlín
(smellið á myndirnar til að sjá þær stærri)