English version


Sýning í Frakklandi
(15/7 ´06)


Dýrfinna tekur þátt í hinni árlegu sýningu Foire Internationale de Caen í Frakklandi 15 – 26. september n.k., en Íslendingar eru heiðursgestir í ár. Skipuleggjandi af Íslands hálfu er Útflutningsráð og val á þátttakendum fór fram á þeim vettvangi (sjá nánar frétt Útflutningsráðs hér:http://www.icetrade.is/article.aspx?catID=1083&ArtId=1822 ).
Fulltrúar þeir sem valdir hafa verið frá Íslandi koma frá ýmsum framleiðslugreinum, bæði í nytjalist, þjónustu og annarri íslenskri framleiðslu sem þykir hafa þjóðlega skírskotun. Íslandi verður gert talsvert hátt undir höfði sýningardagana og sérstakt svæði í sýningarhöllinni verður helgað heiðursgestunum og m.a. hafa verið hannaðir básar í anda gömlu íslensku burstabæjanna. Philippe Ricart og Dýrfinna deila saman sýningarbás en þau eru bæði búsett á Akranesi. Sýningin er sölusýning, mjög umsvifamikil og að jafnaði eru gestir um 220 þúsund talsins. Sjá nánar um sýninguna og kynningu á Íslandi hér: http://www.caen-expo-congres.com/ og fræðast má um bæinn Caen á Normandí á slóðinni http://www.ville-caen.fr/ .


Eldri fréttir

Sumarsýning Handverks & Hönnunar (1/7 ´06)


<< Til baka á forsíðu