![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
|
(11/9 ´06) Dýrfinna er þessa dagana að leggja lokahönd á smíði skarts sem fulltrúi Íslands, Ásdís Svava Hallgrímsdóttir mun bera í keppninni um titilinn Ungfrú Heimur sem fram fer í Póllandi á næstunni. Þetta eru hálsmen, eyrnalokkar og armband, þrjú mismunandi afbrigði sem hún mun bera við jafn mörg tækifæri. Skartið er úr silfri, skreytt steinum. Ásdís Svava bar skart eftir Dýrfinnu í keppninni Ungfrú Ísland en þar hreppti hún raunar 2.sætið Eldri fréttir Sýning í Frakklandi (15/7 ´06) Sumarsýning Handverks & Hönnunar (1/7 ´06) << Til baka á forsíðu |