Dýrfinna og Finnur opnuðu nýja vinnustofu og gallerí að Stillholtinu á Akranesi s.l. laugardag. Um 200 manns heimsóttu þau þennan dag og þáðu veitingar í tilefni dagsins. Á sama tíma var einnig opnuð snyrtistofa og dansstúdío í sömu húsakynnum og sameinuðust þessir þrír aðilar um opnunarhátíð. Í hófinu flutti Jóhanna Leópoldsdóttir ávarp og færði nýjum eigendum gjafir og viðurkenningar. Þá var sýndur magadans í tilefni opnunar dansskólans. Um kvöldið buðu Finnur og Dýrfinna gestum og iðnaðarmönnum til hófs á vinnustofunni.
Smellið hér eða á myndina hér til hliðar til að sjá myndaseríu frá opnuninni.