|
Ísmót 2007, Íslandsmeistaramót faggreina innan Samtaka Iðnaðarins - The Icelandic Skills Competition var haldin í Laugardalshöll um helgina. Keppt var um viðurkenningar í fjölda greina, m.a. skartgripagerð í tveimur flokkum. Annars vegar var um að ræða skart fyrir konur og hinsvegar fyrir karla.
Um 40 gripir bárust dómnefnd sem skipuð var þverfaglegum hópi fulltrúa sem mat keppnisgripi. Þá var almenningi einnig gefinn kostur á þátttöku með símakosningu. Dýrfinna Torfadóttir tók þátt í keppninni og vann verðlaunin, skartgripur ársins 2007 fyrir bæði konur og karla. Verðlaun til vinningashafa í hinum ýmsu greinum voru veitt í 500 manna hófi í Laugardalshöll í lok sýningar að viðstöddum menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
|
Karlaskart Dýrfinnu nefnist Fjara og með því vill hún skírskota til fjöru Íslands og hreinleika sjávar. Efnið sem hún notar í næluna er silfur, skreytt með einum hvítum Cirkon steini. Festingin er nýstárleg en þar er notast við segul.
Kvenskartið nefnist Vertu þú sjálf/Eftir þínu höfði, skart sem er hægt að forma og breyta eftir hugmyndaflugi notandans, tilefni og flík. Efnið sem hún notar er gullþráður, stálþráður, gulldoppur, ferskvatnsperlur með inngreyptum festingum.
Gripir þessir verða til sýningar í nýrri vinnustofu og gallerí sem þau Dýrfinna og Finnur Þórðarson gullsmiður opna sameiginlega að Stillholti 16 á Akranesi síðar í mánuðinum.
sjá www.si.is/ismot
|
|
|
|
1.verðlaun Ísmót 2007, Skartgripur ársins: Skart fyrir karla
Fjara:
Skírskotun til fjöru Íslands og hreinleika sjávar
Efni: Silfur, hvítur cirkon, segull. Næluna er jafnframt hægt að nota sem barmnælu og húfuskraut, jafnvel sem peningaklemmu, sjá myndir sem nauðsynlegt er að hafa til skýringar. Sjá myndir hér neðan við.


|