Þessa dagana stendur yfir sýning Dýrfinnu í Cafe Hamraborg á Ísafirði. Um er að ræða einskonar fléttusýningu ljósmynda og lágmynda.
Dýrfinna starfrækti eins og kunnugt er bæði verslun og verkstæði á Ísafirði um tuttugu ára skeið. Þetta var á þeim tíma þegar hvorki var kominn til posi eða heimabanki þannig að tíðar heimsóknir í viðskiptabankann voru hluti af starfinu.
Kveikjan að sýningunni eru þessar tuttugu ára, daglegu heimsóknir þar sem hún átti farsæl viðskipti og góð samskipti við starfsfólkið. Þeir sem þekkja Dýrfinnu vita að hún er fljóthuga, hugmyndarík, hreinskilin og stundum orðhvöt. Að sama skapi leggur hún litla rækt við nákvæmt skipulag og rútínur. Þessu öllu fékk starfsfólkið að kynnast en aldrei bar skugga á ánægjuleg samskipti við bankafólkið sem í miklum meirihluta voru konur. Bankinn ásamt pósthúsinu reyndist afdrep í erli dagsins og tilbreyting sem oft veitti Dýrfinnu svigrúm til að hugsa sinn gang og velta upp ýmsum hugmyndum. Það teygðist gjarnan úr bæjarferðunum því oft var staldrað við á torginu og spjallað við mann og annan og því kunni Dýrfinna vel.
Starfsfólkinu í bankanum tileinkar Dýrfinna þessa sýningu með þökk fyrir ánægjuleg kynni og góða þjónustu. Hún hefur hug á að efna síðar til annarrar sýningar þar sem hún með sama hætti leikur sér með einhver stef frá kynnum sínum við gamlar vinkonur á pósthúsinu. Sýningunni á Cafe Hamraborg lýkur 6. mars.
Árný Herbertsdóttir tók ljósmyndir á sýningunni en hún starfrækir Ljósmyndastofuna Myndás á Ísafirði