English version
Samsýning í Hönnunarsafni Íslands í maí 2010
(2/6 ´10)

Dýrfinna tók þátt í opnunarsýningu í Hönnunarsafni Íslands sem vígt var í nýju húsnæði við Garðatorg í Garðabæ fimmtudaginn 27. maí s.l. með sýningunni Úr hafi til hönnunar. Meginþema sýningarinnar er fiskleður, roð og annað það sem nýta má úr faðmi hafsins í hönnunarskyni. Þátttakendur eru bæði íslenskir og erlendir hönnuðir og sumir hverjir heimskunnir, m.a. Karl Lagerfelt og Christian Dior.

Meðal gesta við opnunina voru forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og fyrrverandi forseti landsins frú Vigdís Finnbogadóttir. Forsetarnir lýstu ánægju bæði með sýninguna og húsnæðið sjálft en Kanon arkitektar eiga veg og vanda að endurbótum þess.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnaði sýninguna og fjallaði þá m.a. um mikilvægi hönnunar og hve stór þáttur hönnun væri orðinn í lífi nútímafólks. Hún sagðist ánægð með að safnið væri komið í þetta glæsilega húsnæði sem hæfði vel starfsemi þess. Erling Ásgeirsson, stjórnarformaður Hönnunarsafns Íslands ávarpaði einnig gesti opnunarinnar. Hann fór yfir verkefni safnsins og gaf innlit í framtíðarsýn þess ásamt því að tala um stefnu safnsins varðandi safneign og hlutverk þess í að miðla hönnunarsögunni.

Hönnunarsafn Íslands hefur slitið barnsskónum, er orðið safn meðal safna á höfuðborgarsvæðinu og mun standa fyrir reglulegu sýningarhaldi héðan í frá.

Safnið verður opið alla daga nema mánudaga frá 12-17. Í boði verður alltaf nýmalað kaffi og notaleg stemmning. Sýningin Úr hafi til hönnunar stendur í allt sumar.

Heimasíða Hönnunarsafns Íslands er www.honnunarsafn.is

Smellið á mynd - Click on image to enlarge

Smellið á mynd - Click on image to enlarge

Smellið á mynd - Click on image to enlarge


Smellið á mynd - Click on image to enlarge

Smellið á mynd - Click on image to enlarge

Smellið á mynd - Click on image to enlarge


Eldri fréttir

Dýrfinna útnefnd bæjarlistamaður Akraness 2010 (2/3 ´10)
Kórstjóri Fjallabræðra Vestfirðingur ársins (2/3 ´10)
Sýning í Kirkjuhvoli á Vökudögum 2009 (4/11 ´09)
Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur mjög vel sótt (14/11 ´08)
Handverk & Hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur (28/10 ´08)
Í Sívalaturninn öðru sinni (25/4 ´08)
Fyrir tíma posa og heimabanka (2/4 ´08)
Þýskur nemi og sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur (21/11 ´07)
Vinnustofa opnuð í Stillholti (4/10 ´07)
Ný vinnustofa Dýrfinnu (27/9 ´07)
Ísmót 2007 - skartgripur ársins (3/9 ´07)
Japansför og Djúpavík (13/8 ´07)
Undir áhrifum - Djúpavík (27/7 ´07)
Dýrfinna í Japan (31/5 ´07)
Dídí með gripi í Kentucky, USA (19/11 ´06)
Dýrfinna í Berlín (15/11 ´06)
Dýrfinna á Bifröst (10/10 ´06)
Skart fyrir fulltrúa Íslands í alheimskeppninni (11/9 ´06)
Sýning í Frakklandi (15/7 ´06)
Sumarsýning Handverks & Hönnunar (1/7 ´06)


<< Til baka á forsíðu