Sýning Dýrfinnu í Hótel Djúpavík stendur nú sem hæst. Opnað var með pompi og pragt laugardaginn 28. júlí með virðulegu hófi. Gestum var boðið upp á veitingar eins og fara gerir við athafnir sem þessar um leið og notið var þess sem við blasti á veggjum í aðalsal hótelsins.
Í bakgrunni ómaði tónlist af nýútkomnum hljómdiski sem Haraldur Sturlaugsson hafði gefið út til styrktar knattspyrnudeild ÍA og fór vel á því. Dýrfinna hafði lagt sig fram um að auglýsa sýninguna vel. Plaköt voru upp sett á öllum greiðastöðum norður um Strandir, allt frá Brú í Hrútafirði.
Á leið sinni til uppsetningar á gripum sínum, þá áði Dýrfinna á öllum bæjum í byggð norður þangað og stakk að auki boðskorti í póstkassa. Gestir við opnunina voru um 60 talsins og mátti heyra skrafað á ýmislegum tungumálum, svo sem ensku, þýsku, frönsku og svo að sjálfsögðu á ylhýra málinu íslenska.
Sýningin stendur til loka ágúst.
Hér er tengill á síðu Hótel Djúpavík
www.djupavik.com
Meðfylgjandi eru nokkrar svipmyndir sem teknar voru við opnunina.